Átak í fráveitumálum

Samband íslenskra sveitarfélaga og Samorka boða til sameiginlegs fundar um stuðning ríkisins við sveitarfélög vegna fráveituframkvæmda. Fundurinn fer fram í gegnum Microsoft Teams forritið fimmtudaginn 14. janúar og hefst kl. 13:00 stundvíslega. Mjög mikilvægt er að þátttakendur hafi slökkt á myndavél sinni og hljóðnema allan tímann. Umræður og fyrirspurnir fara fram í gegnum spjallið og einnig má rétta upp hönd og fá orðið.

Smelltu hér til að tengjast fundinum

Ný hreinsistöð Norðurorku á Akureyri (Mynd: Norðurorka)

Reglugerð um úthlutun styrkja til fráveitna sveitarfélaga var birt í Stjórnartíðindum þann 30. desember 2020. Á fundinum  verður fjallað um aðdraganda og mikilvægi slíks styrkjakerfis, auk þess sem fulltrúi frá umhverfis- og auðlindaráðuneytinu mun kynna nýja reglugerð og fyrirkomulag við úthlutun styrkja. Einnig mun gefast tækifæri til spurninga og umræðna.

Dagskrá fundarins:

Fundarstjóri: Kristinn Jónasson, bæjarstjóri Snæfellsbæjar.

  1. Páll Erland, framkvæmdastjóri Samorku opnar fundinn - Upptaka af erindi Páls
  2. Kjartan Ingvarsson, lögfræðingur hjá umhverfis- og auðlindaráðuneytinu, kynnir nýja reglugerð og fyrirkomulag um úthlutun styrkja til fráveitna sveitarfélaga. - Upptaka af erindi Kjartans
  3. Spurningar og umræður - Upptaka af spurningum og umræðum