Ársfundur Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga verður haldinn miðvikudaginn 18. nóvember en í fyrsta skipti verður hann haldinn rafrænt.
Til fundarins eru boðaðir framkvæmdastjórar sveitarfélaga, fulltrúar samtaka sveitarfélaga og aðrir samstarfsaðilar Jöfnunarsjóðs. Fundurinn hefst kl. 16 og áætlað er að fundinum ljúki eigi síðar en kl. 17:30. Fundarstjóri verður Guðný Sverrisdóttir, formaður ráðgjafarnefndar Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga.
Dagskrá fundarins
- Setning
Guðný Sverrisdóttir, formaður ráðgjafarnefndar Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga - Ávarp ráðherra
Sigurður Ingi Jóhannsson, samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra - Ársskýrsla Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga 2019
Guðni Geir Einarsson, sérfræðingur hjá Jöfnunarsjóði sveitarfélaga - Áhrif Covid-19 á sveitarfélögin - helstu áskoranir
Matthildur Ásmundardóttir, bæjarstjóri Sveitarfélagsins Hornafjarðar - Greining á fjármálum sveitarfélaga í kjölfar Covid-19
Gunnar Haraldsson, formaður samráðshóps um fjármál sveitarfélaga