Ársfundur Byggðastofnunar

Ársfundur Byggðastofnunar 2022 verður haldinn í félagsheimilinu Þinghamri á Varmalandi í Borgarfirði fimmtudaginn 5. maí. Þema fundarins verður ,,óstaðbundin störf". Fundurinn er öllum opinn og gert er ráð fyrir að honum ljúki um kl. 15:30.

Dagskrá fundarins er sem hér segir:

  • 13:00 Setning fundarins og ávarp formanns stjórnar Byggðastofnunar
    - Magnús B. Jónsson, stjórnarformaður Byggðastofnunar
  • 13:15 Ávarp innviðaráðherra
    - Sigurður Ingi Jóhannsson innviðaráðherra
  • 13:30 Ávarp forstjóra Byggðastofnunar
    - Arnar Már Elíasson settur forstjóri Byggðastofnunar
  • 13:40 Hver er stefna hins opinbera varðandi óstaðbundin störf?
    - Hólmfríður Sveinsdóttir, sérfræðingur í innviðaráðuneytinu og formaður stýrihóps Stjórnarráðsins um byggðamál
  • 14:05 Hvað segja fræðin um óstaðbundin störf?
    - Óli Halldórsson, framkvæmdastjóri Þekkingarnets Þingeyinga og Ellý Tómasdóttir, MS í mannauðsstjórnun frá HÍ
  • 14:50 Hver er eftirspurnin eftir óstaðbundnum störfum?
    - Þorkell Stefánsson, sérfræðingur á þróunarsviði Byggðastofnunar
  • 15:15 Afhending Landstólpans

Allir eru velkomnir.

Dagskrá ársfundarins.