Alþjóðadagur fatlaðs fólks

Á Alþjóðadegi fatlaðs fólks 3. desember ár hvert er kastljósinu beint að baráttu fatlaðs fólks og mikilvægu framlagi þess í samfélaginu. Fatlað fólk er um 15 prósent mannkyns samkvæmt skilgreiningu Alþjóðaheilbrigðisstofnunarinnar eða yfir einn milljarður á heimsvísu. Hér á landi eru þetta um 57.000 manns.

Framundan er þessi mikilvægi dagur en hann hefur verið haldinn frá árinu 1992 með það að markmiði að efla skilning á málefnum fatlaðs fólks og ýta undir stuðning við reisn, réttindi og velferð þess. Jafnframt að auka vitund um þann ávinning sem hlýst af þátttöku fatlaðs fólks á öllum sviðum samfélagsins – stjórnmála-, félags-, efnahags- og menningarlífs.

Fjólublár er litur alþjóðlegrar réttindabaráttu fatlaðs fólks og óskum við eftir því að ráðuneytið lýsi upp byggingar sínar frá föstudeginum 2. desember til mánudagsins 5. desember 2022 og leggi þannig þessari mikilvægu baráttu lið. Þessari sömu bón verður beint til annarra ráðuneyta, stofnana og fyrirtækja. Markmiðið er upplýst samfélag – ekki aðeins þessa daga heldur alla daga, samfélag þar sem fatlað fólk nýtur verðskuldaðrar virðingar og sjálfsagðra réttinda.