Málþing um gróðurelda
fimmtudaginn 17. janúar 2013 – Hjálmakletti í Borgarbyggð
Markmið málþingsins:
Á málþinginu verður lögð áhersla á að ræða og miðla upplýsingum leiðir til að auka viðbúnaðargetu slökkviliða með samstarfi sveitarfélaga og stofnana og skilgreina ábyrgð sveitarfélaga og annarra stjórnvalda.
Fjallað verður um reynsluna af baráttu við gróðurelda, lagt mat á möguleika slökkviliða til að ráða niðurlögum þeirra og rætt um hvaða úrbóta er þörf hvað varðar mönnun slökkviliða, búnað þeirra og fjárhagslega áhættu sveitarfélaga af völdum gróðurelda.
Einnig verður fjallað um aðgerðir til forvarna og áhrif gróðurelda á náttúruna.
Markhópur: Sveitarstjórnir, slökkviliðsstjórar, opinberar stofnanir, skógarbændur, tryggingarfélög, landeigendur og náttúru- og umhverfisverndarsamtök.
Dagskrá ráðstefnunnar
|
09:30 |
Setning og afhending fundargagna |
10:00 |
Setning ráðstefnunnar
Halldór Halldórsson, formaður Sambands íslenskra sveitarfélaga
|
10:10 |
Áherslur umhverfis- og auðlindaráðuneytisins í vörnum gegn gróðureldum
Hafsteinn Pálsson, verkfræðingur umhverfis- og auðlindaráðuneytinu
|
10:25 |
Reynslan af gróðureldum, úrbætur og mögulegar frekari aðgerðir
Björn Karlsson, forstjóri Mannvirkjastofnunar - (pdf skjal)
Bjarni Þorsteinsson, slökkviliðsstjóri Borgarbyggðar
Ómar Már Jónsson, sveitarstjóri Súðavíkurhrepps - (pdf skjal)
|
11:15 |
Áhrif gróðurelda
Sigrún Karlsdóttir, náttúruvástjóri hjá Veðurstofu Íslands - (pdf skjal)
Þorsteinn Jóhannsson, sérfræðingur hjá Umhverfisstofnun og Þröstur Þorsteinsson, dósent við Háskóla Íslands - (pdf skjal)
Járngerður Grétarsdóttir, lektor við Landbúnaðarháskóla Íslands - (pdf skjal)
|
|
Fyrirspurnir og umræður
|
12:00 |
Hádegisverður |
13:00 |
Staða slökkviliða
Jón Viðar Matthíasson, slökkviliðsstjóri Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins - (pdf skjal)
Kristján Einarsson, slökkviliðsstjóri Brunavarna Árnessýslu - (pdf skjal)
Elísabet Pálmadóttir, sviðsstjóri hjá Mannvirkjastofnun - (pdf skjal)
|
|
Fyrirspurnir og umræður
|
14:00 |
Kaffihlé |
14:45 |
Aðgerðir til forvarna
Málfríður K. Kristiansen, verkefnastjóri hjá Skipulagsstofnun - (pdf skjal)
Haraldur Benediktsson, formaður Bændasamtaka Íslands
Hulda Guðmundsdóttir, landeigandi og skógarbóndi - (pdf skjal)
Víðir Reynisson frá almannavarnardeild ríkislögreglustjóra - (pdf skjal)
|
|
Fyrirspurnir og umræður
|
15:50 |
Samantekt og málþinginu slitið
Halldór Halldórsson, formaður Sambands íslenskra sveitarfélaga
|
Fundarstjóri: Páll S. Brynjarsson, sveitarstjóri í Borgarbyggð
Ekki er innheimt ráðstefnugjald en þátttakendum gefst kostur á að kaupa léttan hádegisverð á staðnum gegn vægu gjaldi.
Skráning fer fram á tenglinum hér efst á þessari síðu.
Málþingið verður í beinni útsendingu á netinu. Upptakan verður aðgengileg hér á vef sambandsins.