Vonbrigði með einhliða aðgerð félags- og vinnumarkaðsráðherra

Félags- og vinnumarkaðsráðherra boðaði fulltrúa Sambands íslenskra sveitarfélaga á fund sinn í morgun. Þar tilkynnti ráðherra að hann hefði sent sveitarfélögum tilmæli vegna aðstoðar við útlendinga sem fengið hafa endanlega synjun á umsókn sinni um alþjóðlega vernd hér á landi og eigi ekki rétt á þjónustu á grundvelli útlendingalaga. Jafnframt hefði hann gert breytingar á reglugerð um fjárhagsaðstoð sveitarfélaga.

Að mati Sambands íslenskra sveitarfélaga er þessi einhliða aðgerð félags- og vinnumarkaðsráðherra gríðarleg vonbrigði enda er hún tekin með fullri vitneskju ráðherra um algjöra andstöðu sveitarfélaganna við þessa ráðstöfun. Afstaða stjórnar sambandsins liggur skýrt fyrir en á síðasta stjórnarfundi bókaði stjórn eftirfarandi:

„Stjórn sambandsins ítrekar þá afstöðu sem sambandið hefur talað fyrir undanfarnar vikur um að sveitarfélögum sé hvorki heimilt né skylt að veita þeim erlendu ríkisborgurum fjárhagsaðstoð, sem vísað hefur verið úr þjónustu ríkisins í kjölfar synjunar á umsókn viðkomandi um alþjóðlega vernd, skv. útlendingalögum.“ 

Sambandið mun nú fara yfir stöðuna og skoða viðbrögð við þeirri stöðu sem upp er komin.