Viljayfirlýsing um samræmt verklag sveitarfélaga í byggingarmálum

Heiða Björg Hilmisdóttir undirritaði í dag, fyrir hönd Sambands íslenskra sveitarfélaga, viljayfirlýsingu um samræmt verklag sveitarfélaga í byggingarmálum. Ásamt sambandinu undirrita Húsnæðis- og mannvirkjastofnun (HMS), Stafrænt Ísland og Reykjavíkurborg viljayfirlýsinguna.

Í yfirlýsingunni sammælast framangreindar stofnanir um að vinna saman að því að samræma verklag þvert á sveitarfélög með einu viðmóti fyrir umsókn um byggingarleyfi og afgreiðslu þeirra í stað 64 í dag. Með verkefninu er einnig stefnt að því að auk samræmingu umsókna og afgreiðslu byggingarleyfa muni það flýta fyrir skráningu og auka gæði rauntímaupplýsinga um mannvirkjagerð.

Verkefniðmunstuðla   að markmiðum um   skilvirka   stjórnsýsluásamt   því   mun   bætt   umhverfi  mannvirkjagerðar  stuðla  að  auknum  gæðum,  öryggi,  eftirliti og  rekjanleika.  Verkefnið  er  eitt  af  44 aðgerðum sem ætlað er að ná fram markmiðum húsnæðisstefnu stjórnvalda. Verkefnið samræmist jafnframt aðgerðaráætlun í málefnum sveitarfélaga er varða stafræna umbreytingu þar  sem vinna  skal  að  heildstæðri  stefnumörkun  um  stafræna  umbreytingu  sveitarfélaga  og  samstarf þeirra við ríkið til að ná þeim markmiðum.

Viljayfirlýsing um samræmt verklag sveitarfélaga í byggingarmálum