Viðmiðunargjaldskrá grunnskóla 2023

Út er komin viðmiðunargjaldskrá vegna grunnskólanáms utan lögheimilissveitarfélags vegna skólaársins 2023/2024.

Viðmiðunargjaldið byggir á beinum kostnaði sveitarfélaga við rekstur almennra grunnskóla sveitarfélaga, ásamt sameiginlegum liðum grunnskóla.  Kostnaður vegna innri leigu er utan gjaldskrár sem og ætlað hlutfall vegna sérkennslu. Byggt er á kostnaði sveitarfélaga vegna ársins 2022 og ofan á þann kostnað bætast verðlagsbreytingar frá janúar 2023. Gjaldskráin er stigskipt eftir stærð skóla.

Nánar um viðmiðunarreglur vegna grunnskólanáms utan lögheimilissveitarfélags og gjaldskrá