Vegvísir.is – Nýr gagnvirkur upplýsingavefur

Vegvísir.is er nýr gagnvirkur upplýsingavefur samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytis. Vegvísir markar tímamót með nýstárlegri framsetningu á opinberum gögnum, en þar verður hægt að fylgjast með fjármögnun, framvindu og árangri í yfir 500 verkefnum og 60 mælikvörðum.

Vefnum er ætlað að vera gagnvirkt mælaborð um samgöngur, fjarskipti og byggðamál og leiðarvísir fyrir almenning um þessa málaflokka. Í tilefni af formlegri opnun Vegvísis vekjum við athygli þína á kynningarfundi um vefinn sem verður í beinni vefútsendingu í dag, þriðjudaginn 1. júní kl. 13:00-13:45. Kynningarfundurinn er liður í dagskrá Nýsköpunarvikunnar, sem haldin er 26. maí-2. júní. Fundinum er streymt á netinu á YouTube-rás Stjórnarráðsins. Fundurinn er opinn öllum en við hvetjum fólk til að skrá þátttöku. Þau sem skrá sig fá sendan hlekk á vefstreymið.

Dagskrá

  • Tímamót í miðlun opinberra gagna
    Sigurður Ingi Jóhannsson, samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra
  • Vegvísir að lykilupplýsingum – hvað er á áætlun og erum við að ná árangri?
    Ingilín Kristmannsdóttir, skrifstofustjóri stefnumótunar og fjármála
  • Kynning á Vegvísi.is
    Hrafnkell Hjörleifsson, sérfræðingur og ritstjóri Vegvísis.is
  • Fundarstjóri er Ragnhildur Hjaltadóttir, ráðuneytisstjóri

Liður í Nýsköpunarvikunni

Kynningarfundurinn er liður í dagskrá Nýsköpunarvikunnar, sem haldin er 26. maí-2. júní. Í Nýsköpunarvikunni er vakin athygli á nýsköpun innan stofnana, fyrirtækja og sprotafyrirtækja þar sem framúrstefnulegar lausnir, ólík sköpunarferli og kraftmiklir frumkvöðlar fá notið sín. Nýsköpunarvikan er þannig vettvangur fyrir innlenda jafnt sem erlenda aðila til að kynnast nýsköpun á Íslandi, tengjast sprotum, fjárfestum og frumkvöðlum og mynda ný viðskiptasambönd og tengsl.