Vefráðstefna sveitarfélaga um stafræna umbreytingu

Sambandið minnir á vefráðstefnu um samstarf sveitarfélaga um stafræna umbreytingu sem fram fer miðvikudaginn 29. september nk.

Sveitarfélögin hafa undanfarna mánuði stigið stór skref til samstarfs um stafræna umbreytingu. Stafrænt ráð sveitarfélaga hefur fest sig í sessi og stafrænt þróunarteymi innan sambandsins tekið til starfa. Fyrsta samstarfsverkefni sveitarfélaga um stafræna afgreiðslulausn fyrir fjárhagsaðstoð er komið vel á veg en henni er ætlað að ryðja brautina fyrir fleiri sameiginlegar lausnir. Á ráðstefnunni verður tekinn púlsinn á stöðunni og því sem er framundan.

Á vefráðstefnunni verður kynnt hvernig fjárhagsaðstoðarlausnin mun virka fyrir sveitarfélög og umsækjendur, og hvernig tæknileg högun verður gagnvart sveitarfélögum og inn á Ísland.is.

Sveitarfélög munu segja frá því hvernig þau hafa nýtt sér samstarfið til að hraða stafrænni umbreytingu sinni.  Kynnt verður nýtt lausnatorg á stafraen.sveitarfelog.is og hvernig stafrænt teymi sambandsins ætlar sér að vinna á næsta árið fyrir sveitarfélögin og hverjar áskoranirnar eru. Dönsk sveitarfélög hafa náð mjög góðum árangri í stafrænu samstarfi, m.a. um deilingu lausna sín á milli, og verður það samstarf einnig kynnt á ráðstefnunni.

Takið daginn frá, 29. sept. f.h.!

Skráning á ráðstefnuna