Úthlutun úr Endurmenntunarsjóði grunnskóla 2021

Stjórn Námsleyfasjóðs, sem fer með málefni Endurmenntunarsjóðs grunnskóla, hefur lokið úthlutun árið 2021.

Alls bárust umsóknir um styrki til 209 verkefna frá 71 umsækjanda upp á tæplega 156 milljón króna. Ákveðið var að veita öllum verkefnum styrki og nam heildarfjárhæð styrkloforða kr. 49.900.000. Bréf með niðurstöðu úthlutunar hafa verið send umsækjendum.

Yfirlit úthlutunar 2021.