Úthlutun úr Endurmenntunarsjóði grunnskóla 2020

Stjórn Námsleyfasjóðs, sem fer með málefni Endurmenntunarsjóðs grunnskóla, hefur lokið úthlutun árið 2020.

Stjórn Námsleyfasjóðs, sem fer með málefni Endurmenntunarsjóðs grunnskóla, hefur lokið úthlutun árið 2020. Alls bárust umsóknir um styrki til 187 verkefna frá 73 umsækjendum upp á rúmar 149 milljón króna.

Ákveðið var að veita öllum verkefnum styrki og nam heildarfjárhæð styrkloforða kr. 53.490.000. Bréf með niðurstöðu úthlutunar hafa verið send umsækjendum.