Úthlutun úr Endurmenntunarsjóði grunnskóla 2019

Stjórn Námsleyfasjóðs, sem fer með málefni Endurmenntunarsjóðs grunnskóla, hefur lokið úthlutun árið 2019.

Stjórn Námsleyfasjóðs, sem fer með málefni Endurmenntunarsjóðs grunnskóla, hefur lokið úthlutun árið 2019. Alls bárust umsóknir um styrki til 198 verkefna frá 72 umsækjendum upp á rúmar 113 milljón króna. Ákveðið var að veita öllum verkefnum styrki og nam heildarfjárhæð styrkloforða kr. 49.908.000. Bréf með niðurstöðu úthlutunar hafa verið send umsækjendum.