Úthlutun námsleyfa vegna skólaársins 2023-2024

Úthlutun námsleyfa vegna skólaársins 2023-2024 er lokið. Alls bárust Námsleyfasjóði 179 fullgildar umsóknir.

Fjármagn til úthlutunar leyfði að veitt yrðu 51 námsleyfi. Aðeins var hægt að verða við um 28% þeirra beiðna sem fyrir lágu og því ljóst að mörgum fullgildum umsóknum varð að hafna. Tilkynning um niðurstöðu stjórnar Námsleyfasjóðs hefur verið send öllum umsækjendum bréfleiðis. Námsleyfum var skipt á milli landshluta með hliðsjón af fjölda starfandi kennara og stjórnenda eftir landshlutum. Nöfn námsleyfishafa verða birt á vefsíðu Námsleyfasjóðs um miðjan desember nk., sbr. 15. gr. reglna um Námsleyfasjóð.