Úthlutun námsleyfa vegna skólaársins 2021-2022

Úthlutun námsleyfa vegna skólaársins 2021-2022 er lokið. Alls bárust Námsleyfasjóði 136 fullgildar umsóknir. Fjármagn til úthlutunar leyfði að veitt yrðu 50 námsleyfi.

Aðeins var hægt að verða við um 37% þeirra beiðna sem fyrir lágu og því ljóst að mörgum fullgildum umsóknum varð að hafna. Tilkynning um niðurstöðu stjórnar Námsleyfasjóðs hefur verið send öllum umsækjendum bréfleiðis. Námsleyfum var skipt á milli landshluta með hliðsjón af fjölda starfandi kennara og stjórnenda eftir landshlutum. Nöfn námsleyfishafa verða birt á vefsíðu Námsleyfasjóðs um miðjan desember nk., sbr. 13. gr. reglna um Námsleyfasjóð.