Úthlutun námsleyfa vegna skólaársins 2020-2021

Úthlutun námsleyfa vegna skólaársins 2020-2021 er lokið.

Úthlutun námsleyfa vegna skólaársins 2020-2021 er lokið. Alls bárust Námsleyfasjóði 172 fullgildar umsóknir. Fjármagn til úthlutunar leyfði að veitt yrðu 47 námsleyfi, þar af þrjú til sex mánaða. Aðeins var hægt að verða við um 27% þeirra beiðna sem fyrir lágu og því ljóst að mörgum fullgildum umsóknum varð að hafna.

Tilkynning um niðurstöðu stjórnar Námsleyfasjóðs hefur verið send öllum umsækjendum bréfleiðis. Námsleyfum var skipt á milli landshluta með hliðsjón af fjölda starfandi kennara og stjórnenda eftir landshlutum.

Nöfn námsleyfishafa verða birt á vefsíðu Námsleyfasjóðs um miðjan desember nk., sbr. 13. gr. reglna um Námsleyfasjóð.