Úthlutanir stofnframlaga

Síðan almenna íbúðakerfinu var komið á fót árið 2016 hefur stofnframlögum verið úthlutað vegna byggingar eða kaupa á samtals 2.981 almennri íbúð sem verða staðsettar í öllum landshlutum.

Ljósm.: Ingibjörg Hinriksdóttir

Á vef Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar (HMS) má finna tölulegar upplýsingar um úthlutanir stofnframlaga.

2.981 hagkvæm leiguíbúð frá árinu 2016

Almenna íbúðakerfið var sett á stofn árið 2016 og hefur nú þegar 18 milljörðum króna verið úthlutað til byggingar og kaupa á 2.981 íbúð víðsvegar um landið.

Heildarfjárfesting í uppbyggingu nemur um 93 milljörðum króna.