Útgáfuviðburður: Lífsferilsgreiningar í byggingarreglugerð 

Þriðjudaginn 26. mars 2024 kl. 12-13 verður samræmd aðferðafræði við gerð lífsferilsgreininga fyrir íslenskar byggingar formlega gefin út, með opnun LCA-gáttar og upplýsingasíðu um lífsferilsgreiningar á hms.is.

Fundurinn markar jafnframt upphaf 18 mánaða aðlögunartíma fyrir innleiðingu lífsferilsgreininga. ​ 

Viðburðurinn verður haldinn hjá HMS, Borgartúni 21 og í streymi á hms.is/streymi. Smelltu hér til að skrá þig á viðburðinn. 

Boðið verður upp á létta hádegishressingu.​ 

Meðal þeirra sem munu koma fram eru: 

  • Sigurður Ingi Jóhannsson innviðaráðherra​ 
  • Þóra Margrét Þorgeirsdóttir og Elín Þórólfsdóttir HMS​ 
  • Jóhanna Klara Stefánssdóttir, Samtökum iðnaðarins​ 

Hér er um að ræða fyrstu afurðina úr vinnunni við endurskoðun á byggingarreglugerðinni. Jafnframt er þetta afrakstur vinnu LCA-sérfræðihóps og HMS, sem byggir á grunni aðgerðar 5.1.3. í Vegvísi að vistvænni mannvirkjagerð. Samband íslenskra sveitarfélaga á fulltrúa í verkefnastjórn Byggjum grænni framtíðar sem stendur að gerð vegvísisins ásamt því að koma að vinnu við endurskoðun á byggingarreglugerðinni.  

Nánar á vef HMS.