Upptaka frá kynningarfundi um landsáætlun í skógrækt komin á vefinn

Skógræktin og Samband íslenskra sveitarfélaga efndu til kynningarfundar föstudaginn 11. júní kl. 09:00-10:00. Fundurinn var haldinn með rafrænum hætti á Teams.

Tilefni fundarins var að kynna drög að landsáætlun í skógrækt 2021-2031, ásamt drögum að umhverfismati áætlunarinnar, fyrir sveitarfélögunum. Þröstur Eysteinsson skógræktarstjóri og formaður verkefnaráðs landsáætlunar í skógrækt fór yfir helstu þætti nýrrar áætlunar og þá sérstaklega það sem snýr að sveitarfélögunum. Drögin hafa verið send sveitarfélögunum til umsagnar og var umsagnarfrestur 18. júní nk.

Drög að landsáætlun í skógrækt (tengill yfir á vef Skógræktarinnar)

Horfðu á upptöku frá fundinum