Evrópuvika sjálfbærrar orku stendur nú yfir

Evrópuvika sjálfbærrar stendur nú yfir. Vikunni er ætlað að kynna nýjungar í orkunýtinguog tækni, stefnumótun og framkvæmd  á sviði endurnýjanlegrar orku. Í tengslum við vikuna er að finna fjölbreytta dagskrá viðburða víðsvegar um Evrópu.

Evrópuvika sjálfbærrar orku hófst í gær. Vikunni er ætlað að kynna nýjungar í orkunýtingu og tækni, stefnumótun og framkvæmd  á sviði endurnýjanlegrar orku. Í tengslum við vikuna er að finna fjölbreytta dagskrá viðburða  víðsvegar um Evrópu.  Viðburðir á Evrópuvikunni kynna fyrirtækjum, stjórnvöldum og almenningi tækni sem byggir á sjálfbærri orku og sýna að hún getur verið raunhæfur, hagkvæmur og umhverfisvænn kostur. Í Brussel er fjöldi umræðufunda, ráðstefna og sýninga skipulagður af framkvæmdastjórn ESB og öðrum aðilum, s.s. fulltrúum orkufyrirtækja, vísindamönnum, stjórnvöldum og félagasamtökum. 

Brussel-skrifstofa Sambands íslenskra sveitarfélaga stendur að viðburði um nýsköpun sveitarfélaga og endurnýjanlega orku í  samstarfi við danska, skoska, sænska og finnska sveitarfélagasambandið og Skotland og Katalóníu.

Evrópuverðlaun á sviði sjálfbærrar orku 

Hápunktur vikunnar er afhending Evrópuverðlauna á sviði sjálfbærrar orku (e.  Sustainable Energy Europe Awards) sem veitt eru framúrskarandi orkuverkefnum. 

  • Neytendaverðlaunin féllu í skaut Bio.Energy.Parc (Saerbeck, Þýskalandi). En árið 2008 ákváðu hinir 7,200 ákváðu íbúar Saerbeck að verða sjálfbærir þegar kemur að orkuframleiðslu eftir 2030.
  • Almannaþjónustuverðlaunin fellu í skaut  PEACE_Alps (Tórínó, Ítalíu), sem aðstoðar sveitarfélög í Ölpunum við að minnka losun gróðurhúsalofttegunda. 
  • Fyrirtækja- og borgaraverðlaunin féllu í skaut  WiseGRID (Valencia, Spáni), fjármagnað af Horizon 2020 áætlun ESB. Um er að ræða lausnir til að bæta raforkuflutning og valdefla neytendur. 
  • Æskulýðsleiðtogaverðlaunin fengu  Czech Sustainable Houses (Český Krumlov, Tékklandi), arkítektasamkeppni sem hvetur unga arkítekta til að finna sjálfbærar orkulausnir.