Börn í borg í Vínarborg

Heimsáðstefnan Börn í borg eða Child in the City World Conference fer fram í Vínarborg dagna 24. til 26. september nk. Þessi sérhæfða ráðstefna um barnvænar borgir fer nú fram í níunda sinn.

Heimsáðstefnan Börn í borg eða Child in the City World Conference fer fram í Vínarborg dagana 24. til 26. september nk. Þessi sérhæfða ráðstefna um barnvænar borgir fer nú fram í níunda sinn.

Boðið verður upp á erindi, fyrirlestra og umræður ásamt vettvangsferðum, þar sem  kynnt verða barnvæn verkefni sem unnið er nú að víða um Vínarborg.

Meginumfjöllunarefni ráðstefnunnar er fjórþætt og skiptist í eftirtalin þemu:

  • Réttindi barna gagnvart borgarskipulagi og endurreisn borgarhverfa (e. urban development and regeneration)
  • Börn og ungt fólk og fjölmiðlar
  • Jafnrétti og fjölbreytni innan barnvænna borga
  • Aðgengi og samgöngumál í barnvænum borgum.

Ráðstefnan er ætluð þeim sem tengjast í störfum sínum réttindum barna, æskulýðsmálum, skipulagsmálum og rannsóknum á börnum og unglingum, en að henni stendur stofnunin Child in the City. Um tvíæring er að ræða, sem hefur frá árinu 2002 farið fram annað hvert ár í mismunandi borgum í Evrópu, þ.á.m. Brugge, Stuttgard, London, Rotterdam, Flórens, Zagreb og Óðinsvéum.

Fleiri en 100 fyrirlesarar koma fram á ráðstefnunni, sem tekur við allt að 500 þátttakendum hvaðanæva að úr heiminum.  

Child-in-the-city-world-conferende-2018