Þekkingarsetur um úrgangsmál veitir sveitarfélögum ráðgjöf

Nýlega undirritaði samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra samkomulag um fjárstuðning við Samtök sunnlenskra sveitarfélaga til að stofna þekkingarsetur á Laugarvatni um úrgangsmál.

Tilgangur þekkingarsetursins er að aðstoða sveitarfélög að innleiða hringrásarhagkerfi í úrgangsmálum með megináherslu á endurnýtingu og þar með að draga úr urðun heimilisúrgangs - sem er stórt loftslagsmál. Ásgerður Kristín Gylfadóttir, formaður bæjarráðs á Hornafirði og formaður SASS undirritaði samkomulagið ásamt Sigurði Inga.

Í samkomulaginu segir að markmiðið sé að leiða saman sveitarfélög, atvinnulíf og háskóla til að vinna að samfélagslegri uppbyggingu, sem byggi á stoðum fræðimennsku, hagkvæmni einkaframtaksins og vilja til að gera enn betur.

Þekkingarsetrið mun aðstoða sveitarfélög við að halda utan um málaflokkinn og laga sig að nútímalegri úrgangsstjórnun. Það mun einnig birta upplýsingar um þjónustugjöld og raunkostnað við afsetningu úrgangs í öllum sveitarfélögum og koma á samræmingu á úrgangsgögnum frá mismunandi þjónustuaðilum.

Samkomulagið gildir til ársins 2024 og nemur fjárstyrkurinn 5.870.000 kr.