Sveitarstjórnarviðburður í tengslum við leiðtogafund Evrópuráðsins í Reykjavík

Kjörnum fulltrúum í sveitarstjórnum og framkvæmdastjórum sveitarfélaga er sérstaklega boðið að taka þátt í sveitarstjórnarviðburði í tengslum við leiðtogafund Evróðuráðsins í Reykjavík.

Þá er ungu fólki er einnig sérstaklega boðið að taka þátt.

Viðburðurinn verður haldinn 15. maí nk. í Ráðhúsi Reykjavíkur frá kl. 09:00-13:00. Yfirskrift hans er: ”Embedding democratic values at grassroots level”. Hér að neðan má finna drög að dagskrá og upplýsingar um af hverju er verið að halda þennan viðburð. Hann verður öllum opinn en ofangreindir hópar eru sérstaklega hvattir til þátttöku.

Sveitarstjórnarþing Evrópuráðsins (Congress of Local and Regional Authorities) stendur fyrir viðburðinum í samstarfi við sambandið og Reykjavíkurborg. Þingið er skipað kjörnum fulltrúum af sveitarstjórnar- og millistjórnsýslustigi í aðildarríkjum Evrópuráðsins og er meginhlutverk þess að styrkja staðbundið lýðræði í aðildarríkjum ráðsins.  Ísland á þrjá fulltrúa á þinginu sem eru tilnefndir af stjórn sambandsins. Hér eru nánari uppýsingar um þingið og samantektir um síðustu þing.

Streymt verður af fundinum en hann ekki tekinn upp. Nánari upplýsingar um streymi og annað á vefsíðu þingsins, Congress website, og samfélagsmiðlasíðum þess, Facebook og Twitter sem og á Twitter síðu Evrópuráðsins.