Sveitarfélög bera ekki ábyrgð á þjónustu við erlenda ríkisborgara í ólögmætri dvöl

Samband íslenskra sveitarfélaga hefur tekið saman minnisblað um álitaefni sem fram koma í 15. grein laga um félagsþjónustu sveitarfélaga nr. 40/1991 og varða heimild eða skyldu sveitarfélaga til að veita útlendingi sem ekki hefur lögheimili á Íslandi fjárhagsaðstoð.

Mynd af Unsplash.com. Ljósmyndari Annie Spratt

Einnig er í minnisblaðinu fjallað um reglugerð um fjárhagsaðstoð sveitarfélaga, í sérstökum tilvikum, við erlenda ríkisborgara og endurgreiðslur fjárhagsaðstoðar úr ríkissjóði nr. 520/2021.

Í minnisblaðinu eru raktar forsendur þess að sveitarfélögum sé heimilt að veita einstaklingum fjárhagsaðstoð og athugasemdir við 15. gr. laganna er fjallar um fjárhagsaðstoð gagnvart erlendum ríkisborgurum sem ekki eiga lögheimili í landinu. Einnig eru ítrekaðar ábendingar sambandsins sem fram komu í umsögn þess á sínum tíma þar sem bent var á þá stöðu sem nú er komin uppi um þjónustu gagnvart þessum hópi fólks.

Er það niðurstaða sambandsins að miðað við þær forsendur sem raktar eru í minnisblaðinu að sveitarfélögum sé hvorki heimilt né skylt að veita þeim erlendu ríkisborgurum fjárhagsaðstoð, sem vísað hefur verið úr þjónustu ríkisins í kjölfar synjunar á umsókn viðkomandi um alþjóðlega vernd skv. útlendingalögum.  

Samband íslenskra sveitarfélaga telur brýnt að leysa úr þeirri óvissu sem upp er komin gagnvart þessum hópi fólks og þeim vanda sem það er í. Jafnframt lýsir sambandið sig reiðubúið til fundahalda hvað varðar efni þessa minnisblaðs með þeim ráðuneytum sem að málaflokknum koma.

Minnisblað Sambands íslenskra sveitarfélaga