Stöndum vörð um skólastarf

Þann 19. ágúst sl. undirrituðu fulltrúar lykilaðila í starfsemi leik- og grunnskóla sameiginlega yfirlýsingu um leiðarljós skólanna á komandi skólaári. Í yfirlýsingunni er áréttað mikilvægi þess að skólastarf fari fram með eins hefðbundnum hætti og frekast er unnt og réttur allra nemenda til náms sé tryggður.

„Saman munum við gera allt hvað við getum til að tryggja áfram skólastarf þar sem menntun, vellíðan og öryggi nemenda og starfsfólks er í forgangi. Umhyggja, sveigjanleiki og þrautseigja verða leiðarljós þeirrar samvinnu,“ segir m.a. í yfirlýsingunni.

Þá segir að aðilar búi að dýrmætri reynslu frá liðnu vori og hafi einsett sér að bregðast hratt við þróun mála, nýjum upplýsingum og aðstæðum hverju sinni. Hugsa í lausnum og tryggja að nemendur hafi viðeigandi aðstöðu og stuðning til að stunda nám sitt. Undirritaðir hvetja samfélagið allt til að leggjast á sveif með skólum landsins og standa vörð um skólastarf, enda sé menntun sé ein af grunnstoðum samfélagsins og eitt brýnasta velferðarmál þjóðarinnar til framtíðar.

Í aðdraganda skólaársins hefur mennta- og menningarmálaráðuneyti unnið með sóttvarnaryfirvöldum og framkvæmdaaðilum skóla- og frístundastarfs að útfærslum á gildandi sóttvarnarráðstöfunum fyrir mismunandi skólastig. Þær verða sendar út og birtar á vef ráðuneytisins í vikunni.

Stöndum vörð um skólastarf - sameiginleg viljayfirlýsing um leiðarljós í skólastarfi á tímum COVID-19

Myndin er tekin af vef stjórnarráðsins. Ljósmyndari Golli.
Aldís Hafsteinsdóttir formaður Sambands íslenskra sveitarfélaga, Lilja Alfreðsdóttir mennta- og menningarmálaráðherra, Fanney Dóróthe Halldórsdóttir formaður Grunns – félags fræðslustjóra og stjórnenda og Ragnar Þór Pétursson formaður Kennarasambands Íslands undirrituðu viljayfirlýsinguna í Hörpu.
Myndin er tekin af vef stjórnarráðsins, ljósmyndari Golli.