Heimsmarkmiðagáttin opnuð

Í byrjun júlí mánaðar opnaði Verkefnastjórn stjórnvalda um heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna Heimsmarkmiðagátt þar sem fólki gefst kostur á að koma verkefnum tengdum heimsmarkmiðum Sameinuðu þjóðanna á framfæri.

Í byrjun júlí mánaðar opnaði Verkefnastjórn stjórnvalda um heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna  Heimsmarkmiðagátt þar sem fólki gefst kostur á að koma verkefnum tengdum heimsmarkmiðum Sameinuðu þjóðanna á framfæri.

Tilgangurinn með gáttinni er að virkja samfélagið í heild sinni við innleiðingu heimsmarkmiðanna og tryggja góða upplýsingamiðlun milli stjórnvalda og hagsmunaaðila um markmiðin.

Öllum frjálst að senda inn verkefni

Innsendingu verkefna í gáttina er ætlað að vera hvetjandi fyrir ýmsa aðila til að auka sjálfbærni í daglegri starfsemi. Þá getur innsending verkefna verið góð leið til þess að vekja athygli á hagnýtum og nýstárlegum verkefnum á sviði sjálfbærrar þróunar. Gáttin getur einnig nýst til þess að leita sér innblásturs og jafnvel til þess að finna mögulega samstarfsaðila að verkefnum.

Heimsmarkmiðagáttin byggir á erlendum fyrirmyndum, meðal annars frá Finnlandi. Öllum er frjálst að senda inn verkefni í Heimsmarkmiðagáttina og skulu verkefnin uppfylla þau skilyrði að þau feli í sér mælanleg markmið sem stuðli að sjálfbærri þróun og þar með framgangi heimsmarkmiðanna. Þá skal sett fram tímasett áætlun og tiltekið hvenær áætlað er að markmiðum verði náð.

Gáttina má finna á vef Heimsmarkmiðanna, heimsmarkmidin.is.