Hópur sveitarstjórnarmanna og sérfræðinga hefur sent ríkisstjórn landsins áskorun um, að lokið verði við uppbyggingu ofanflóðavarna sem fyrst. Bent er á að eftir því sem uppbygging tefst, aukist hætta á fyrirbyggjanlegum slysum af völdum snjóflóða og skriðufalla og því sé brýnt að fjárheimildir úr ofanflóðasjóði verði auknar.
Hópur sveitarstjórnarmanna og sérfræðinga hefur sent ríkisstjórn landsins áskorun um, að lokið verði við uppbyggingu ofanflóðavarna sem fyrst. Bent er á að eftir því sem uppbygging tefst, aukist hætta á fyrirbyggjanlegum slysum af völdum snjóflóða og skriðufalla og því sé brýnt að fjárheimildir úr ofanflóðasjóði verði auknar.
Í áskoruninni segir enn fremur að fjárhagsleg og tæknileg efni virðist standa til þess, að þeim framkvæmdum sem eftir standi verði lokið fyrir árið 2030, að því gefnu að ráðist verði í þær fljótlega. Samtímis mætti vinna að undirbúningi þeirra framkvæmda, sem eru skemmra á veg komnar, í samvinnu við þau sveitarfélög sem um ræðir ásamt öðrum stjórnvöldum.
Um verðugt verkefni sé að ræða, nú þegar tæpur aldarfjórðungur er liðinn frá hinum hörmulegu slysum í Súðavík og á Flateyri árið 1995.
Ekki er viðunandi að meira en hálf öld líði frá þessum slysum þar til fullnægjandi varnir hafa verið reistar fyrir byggð á mestu snjóflóðahættusvæðum landsins þar sem slíkur hægagangur býður heim hættu á mannskæðum slysum í þéttbýli.
Nálgast má áskorunina í heild sinni á hlekk hér að neðan. Þeir 13 sveitarstjórnarmenn og sérfræðingar sem undirrita áskorunina eru:
- Aðalheiður Borgþórsdóttir, bæjarstjóri Seyðisfjarðarkaupstaðar
- Aldís Hafsteinsdóttir, formaður Sambands íslenskra sveitarfélaga
- Gunnar I. Birgisson, bæjarstjóri Fjallabyggðar
- Guðmundur Gunnarsson, bæjarstjóri Ísafjarðarbæjar
- Halldór Halldórsson, fyrrverandi bæjarstjóri Ísafjarðarbæjar og fulltrúi í ofanflóðanefnd
- Harpa Grímsdóttir, hópstjóri ofanflóðavöktunar á Veðurstofu Íslands
- Karl Óttar Pétursson, bæjarstjóri Fjarðabyggðar
- Kristín Martha Hákonardóttir, ofanflóðasérfræðingur á verkfræðistofunni Verkís
- Magni Hreinn Jónsson, verkefnisstjóri ofanflóðahættumats á Veðurstofu Íslands
- Magnús Jónsson, fyrrverandi Veðurstofustjóri
- Magnús Jóhannesson, fyrrv. ráðuneytisstjóri og fyrrv. formaður ofanflóðanefndar
- Tómas Jóhannesson, ofanflóðasérfræðingur á Veðurstofu Íslands
- Trausti Jónsson, veðurfræðingur og fyrrverandi sviðsstjóri á Veðurstofu Íslands
Áskorun til ríkisstjórnar Íslands vegna uppbyggingar ofanflóðavarna á landinu