Viðkvæm álitamál og nemendur

Föstudaginn 27. apríl nk. efnir Samband íslenskra sveitarfélaga til morgunverðarfundar á Grand hóteli í Reykjavík. Fundurinn hefur yfirskriftina Viðkvæm álitamál og nemendur. Þar verður fjallað um hvaða erfiðleikar og áskoranir geta komið upp þegar fjallað er um viðkvæm álitamál í skólum eins og hryðjuverk, sjálfsvíg, andlát nákomins, einelti, skilnaði o.fl.? Eiga kennarar og annað starfsfólk skóla að leiða slíka umræðu?

Three-children-alice-thumbFöstudaginn 27. apríl nk. efnir Samband íslenskra sveitarfélaga til morgunverðarfundar á Grand hóteli í Reykjavík. Fundurinn hefur yfirskriftina Viðkvæm álitamál og nemendur. Þar verður fjallað um hvaða erfiðleikar og áskoranir geta komið upp þegar fjallað er um viðkvæm álitamál í skólum eins og hryðjuverk, sjálfsvíg, andlát nákomins, einelti, skilnaði o.fl.? Eiga kennarar og annað starfsfólk skóla að leiða slíka umræðu?

Dagskrá og skráning á fundinn

Að beiðni menntamálaráðuneytisins fóru tveir skólastjórnendur, kennari og náms- og starfsráðgjafi í vinnubúðir í Útey í Noregi þar sem þessi mál voru tekin til umfjöllunar og kynntar leiðir til að takast á við þau með nemendum á faglegan hátt.

Á fyrri morgunfundi sambandsins um skólamál 2018 verða þessar áskoranir til umfjöllunar, í íslensku skólasamhengi, í samstarfi við hópinn sem sótti vinnubúðirnar i Útey. Hann verður haldinn föstudaginn 27. apríl, á Grand hóteli og hefst kl. 8:00. Þá verður verkefnið kynnt og mikilvægi faglegrar hæfni við að takast á við viðkvæm álitamál með nemendum. Þátttakendur fá jafnframt að spreyta sig á verkefnum. Þátttökugjald er 3.500 krónur og er morgunverður innifalinn í verðinu.

Fyrirlesarar:  

  • Bryndís Haraldsdóttir, náms- og starfsráðgjafi,
  • Guðrún Ebba Ólafsdóttir, grunnskólakennari,
  • Jón Páll Haraldsson, skólastjóri og
  • Linda Heiðarsdóttir, aðstoðarskólastjóri