Skýrsla starfshóps um geðrækt í skólum komin út

Starfshópur á vegum embættis landlæknis sem unnið hefur tillögur um innleiðingu geðræktarstarfs, forvarna og stuðnings við börn og ungmenni í skólastarfi hefur skilað niðurstöðum sínum til heilbrigðisráðherra.

Starfshópur á vegum embættis landlæknis sem unnið hefur tillögur um innleiðingu geðræktarstarfs, forvarna og stuðnings við börn og ungmenni í skólastarfi hefur skilað niðurstöðum sínum til heilbrigðisráðherra. Tillögur hópsins hafa einnig verið kynntar fyrir mennta- og menningarmálaráðherra og félags- og barnamálaráðherra.

Vinna starfshópsins er liður í framkvæmd þingsályktunar um stefnu og aðgerðaáætlun í geðheilbrigðismálum, sem samþykkt var á Alþingi 29. apríl 2019. Í hópnum sátu fulltrúar frá mennta- og menningarmálaráðuneyti, Sambandi íslenskra sveitarfélaga, Menntamálastofnun, Kennarasambandi Íslands og Heimili og skóla.

Í vinnu sinni byggði starfshópurinnn á stöðu þekkingar á geðrækt og þrepaskiptum stuðningi í skólastarfi (e. multi-tiered systems of support), reynslu annarra þjóða af innleiðingu geðræktarstarfs í skólum, fyrirliggjandi skýrslum og úttektum hér á landi og niðurstöðum nýrrar landskönnunar í íslenskum leik-, grunn- og framhaldsskólum. Tillögur hópsins telja yfir 40 aðgerðir, sem ná bæði til skólakerfisins og annarra kerfa sem sinna velferð barna og ungmenna, og hafa mikilvæga snertifleti við þá endurskoðun á málefnum barna sem þegar er hafin í samvinnu þvert á ráðuneyti.