Sameiginleg yfirlýsing vegna áhrifa COVID-19 á skólastarf

Íslenskt samfélag tekst nú á við miklar áskoranir vegna heimsfaraldurs COVID-19. Gripið hefur verið til aðgerða sem eiga sér engin fordæmi á lýðveldistímum sem meðal annars snúa að skólastarfi í landinu. Í framhaldi af fundi sóttvarnarlæknis, fulltrúa almannavarnardeildar ríkislögreglustjóra, mennta- og menningarmálaráðuneytis, Sambands íslenskra sveitarfélags, Samtaka sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu, Reykjavíkurborgar og Kennarasambands Íslands, laugardaginn 14. mars, kemur eftirfarandi yfirlýsing:

„Almannavarnir standa frammi fyrir nýjum veruleika á hverjum degi. Brýnt er að tilmælum yfirvalda, sem miða að því að tryggja öryggi borgaranna og verja innviði íslensks samfélags, sé fylgt og að ákvarðanataka og framkvæmd séu eins vandaðar og kostur er.

Mat sóttvarnarlæknis og yfirvalda á þessari stundu er að þýðingarmikið sé að leik- og grunnskólar starfi áfram. Þessi ákvörðun byggir á eðli sjúkdómsins og mikilvægi skóla í samfélaginu. Starfsemi skóla verður þó skilyrðum háð og ljóst er að skólahald mun raskast.

Öryggi og heilsa nemenda og starfsfólks er fyrir öllu. Viðkvæma hópa þarf að verja sérstaklega og tryggja að umsvifalaust sé brugðist við öllum mikilvægum upplýsingum sem varða starfsemi skólanna.

Samfélagið tekur nú allt höndum saman í því verkefni sem blasir við. Skólakerfið mun ekki anna öllum lögbundnum verkefnum á næstu vikum og þarf að forgangsraða. Því er þeim tilmælum beint til almennings, og sérstaklega til atvinnulífsins, að sýna sveigjanleika og ábyrgð. Foreldrar eru beðnir um að fara að þeim tilmælum sem koma frá skólayfirvöldum og skólastjórnendum um skólahald.

Skólastarf er ein af grunnstoðum samfélagsins. Skólar hafa meðal annars það hlutverk að auka jöfnuð og vernda börn. Starfsfólk skólanna hefur unnið þrekvirki við að styðja við nemendur á þessum óvissutímum.

Þeir aðilar sem undir þessa yfirlýsingu skrifa ætla sér að eiga mikið og öflugt samstarf til að tryggja að brugðist sé hratt og vel við þeim aðstæðum sem upp koma. Í þeirri vinnu mun velferð og öryggi ævinlega hafa forgang. Tryggt verður að upplýsingagjöf um málefni skólanna sé öflug, markviss og heiðarleg."