Morgunverðarfundur um skólamál

Niðurstöðum Skólaþings sveitarfélaga, sem haldið var 4. nóvember 2019 undir yfirskriftinni „Á réttu róli?“ verður fylgt eftir á fyrsta morgunverðarfundi sambandsins um skólamál 17. febrúar nk. á Grand hóteli

Niðurstöðum Skólaþings sveitarfélaga, sem haldið var 4. nóvember 2019 undir yfirskriftinni „Á réttu róli?“ verður fylgt eftir á fyrsta morgunverðarfundi sambandsins um skólamál 17. febrúar nk. á Grand hóteli, frá kl. 08:00-10:15.

Á skólaþinginu var athygli þátttakenda beint að skipan og umgjörð skólakerfisins fyrst og fremst. Lagðar voru spurningar fyrir fyrirlesara, ungmennaráð og þátttakendur um það hvort og þá hvernig gildandi skólaskipan væri að þjóna nemendum og áskorunum til framtíðar. Því var m.a. velt upp hvort sú skipan, sem rætur á að rekja til grunnskólalaga frá 1974, væri mögulega að hefta þróun íslensks skólakerfis eða hefði ekkert með það að gera. Afar dýrmætar upplýsingar fengust úr umræðuhópum, svörum frá ungmennaráðum og í erindum fyrirlesara á skólaþinginu. Nú vill sambandið taka umræðuna áfram og fær til þess valinkunna einstaklinga af vettvangi skóla og atvinnulífs.

Dagskrá og skráning á morgunverðarfundinn