Leiðbeinandi álit um tvöfalda skólavist barna

Samband íslenskra sveitarfélaga hefur gefið út leiðbeinandi álit um tvöfalda skólavist barna í leik- eða grunnskólum.

Samband íslenskra sveitarfélaga hefur gefið út leiðbeinandi álit um tvöfalda skólavist barna í leik- eða grunnskólum. Í álitinu kemur fram það mat sambandsins að tvöföld leik- eða grunnskólavist barna samræmist ekki ákvæðum viðkomandi laga. Beiðnum frá forsjáraðilum um tvöfalda grunnskólagöngu barna hefur fjölgað á undanförnum misserum. Ráðleggur sambandið því öllum sveitarfélögum að hafna slíkum beiðnum.

Embætti umboðsmanns barna tekur undir það sem fram kemur í álitinu um að rétt sé að miða við að foreldrar lagi sig að aðstæðum barns, til að tryggja því samfellu í daglegu lífi, öryggi og festu fremur en að barnið aðlagi sig að aðstæðum foreldranna.