Foreldraverðlaun heimila og skóla

Verkefnið Láttu þér líða vel, hlaut í gær foreldraverðlaun 2018 hjá landssamtökum foreldra, Heimili og skóli. Því var ýtt úr vör fyrir tveimur árum í Vogaskóla að frumkvæði Guðrúnar Gísladóttur, kennara við skólann. Var þetta í 23. sinn sem verðlaunaafhending samtakanna fer fram.

Aðrir verðlaunahafar voru Birgitta Bára Hassenstein, sem var valinn dugnaðarforkur samtakanna, en Birgitta hefur sem kunnugt verið formaður SAMFOK, samtaka foreldra grunnskólabarna í Reykjavík. Þá hlaut verkefnið Allir með - tölum saman hvatningarverðlaun Heimila og skóla, en að því komu SAMFOK og samtökin Móðurmál í sameiningu. Voru haldin 10 málþing í vetur undir yfirskrift verkefnisins fyrir foreldra af erlendum uppruna á einum 10 tungumálum.

Verðlaunaafhendinginfór fram í Safnahúsinu við Hverfisgötu í Reykjavík að viðstöddum menntamálaráðherra, Lilju Alfreðsdóttur. Tilnefningar hlutu samtals 30 verkefni.

Dómnefnd skipuðu Sigrún Edda Eðvarðsdóttir, formaður dómnefndar, Heimilum og skóla, Aðalheiður Steingrímsdóttir, Kennarasambandi Íslands, Guðni Björnsson forvarnaráðgjafi, Ingibjörg Guðmundsdóttir, Embætti landlæknis, Ragnheiður Bóasdóttir, mennta- og menningarmálaráðuneyti, Stefanía Sörhellar Reykjavíkurborg og Þóroddur Helgason, fræðslustjóri Fjarðabyggð.

Nánari upplýsingar um verðlaunaverkefni eru á vef Heimila og skóla

Foreldraverdlaun-2018 Frá verðlaunaafhendingunni í Safnahúsinu.