Hvað á sveitarfélagið að heita?

Alls bárust 62 mismunandi hugmyndir að hugmynd á nýtt sameinað sveitarfélag Borgarfjarðarhrepps, Djúpavogshrepps, Fljótsdalshéraðs og Seyðisfjarðarkaupstaðar.

Alls bárust 62 mismunandi hugmyndir að hugmynd á nýtt sameinað sveitarfélag Borgarfjarðarhrepps, Djúpavogshrepps, Fljótsdalshéraðs og Seyðisfjarðarkaupstaðar. Nafnanefnd hins sameinaða sveitarfélags fundaði 10. febrúar og fór yfir hugmyndirnar. Nefndin hittist aftur í dag 14. febrúar og tekur þá ákvörðun um hvaða tillögur fara til umsagnar Örnefnanefndar, sem hefur allt að þrjár vikur til að veita umsagnir. Að umsagnarfresti Örnefnanefndar liðnum kemur nafnanefndin saman að nýju og gerir tillögu til Undirbúningsstjórnar um hvaða nöfn verða lögð fyrir kjósendur í atkvæðagreiðslu 18. apríl. Kosningin er ekki bindandi.

Ný sveitarstjórn ákveður heitið að afloknum kosningum. Hugmyndirnar eru eftirfarandi:

1. Álfabyggð 22. Egilsstaðahreppur 43. Múlaþinghá
2. Arðbær 23. Eystribyggð 44. Mýlingaþinghá
3. Austan Kreppu 24. Eystraþing 45. Sambyggð
4. Austri 25. Eystriþinghá 46. Sameinuðu austfirsku furstadæmin
5. Austur-kaupstaðarþing 26. Fagrabyggð 47. Skógargerði
6. Austurbær 27. Fjarðarsel 48. Stóraþinghá
7. Austurbyggð 28. Fljóseydjúpborg 49. Sveitarfélagið Austri
8. Austurhérað 29. Fljótabyggð 50. Sveitarfélagið Austur
9. Austurland 30. Fljótsfjarðarhreppur 51. Sveitarfélagið Austurland
10. Austurríki 31. Frábær 52. Sveitarfélagið Austurvegur
11. Austurþing 32. Grautarbyggð 53. Sveitarfélagið Brú
12. Austurþinghá 33. Héraðsbyggð 54. Sveitarfélagið Búland
13. Blikabyggð 34. Hreppur rísandi sólar (eða Hreppur hinnar rísandi sólar) 55. Sveitarfélagið Fljótsdalshérað
14. Búlandsbær 35. Lagarbyggð 56. Sveitarfélagið Glettingur
15. Búlandsbyggð 36. Lagarfljótsfjarðarþing 57. Sveitarfélagið Héraðsfirðir
16. Búlandshérað 37. Lagarfljótshreppur 58. Sveitarfélagið Lagarþing
17. Drekabæli 38. Múlaborg 59. Sveitarfélagið Múlaþing
18. Drekabyggð 39. Múlabyggð 60. Sveitarfélagið Seiðandi
19. Drekaland 40. Múlabyggðir 61. Sveitarfélagið Tindar
20. Dyrfjallabyggð 41. Múlahreppur 62. Vættabyggð
21. Egilsfjarðabyggð 42. Múlaþing  

Fjallað er um heiti sveitarfélaga í 5. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011 en greinin er svohljóðandi:

5. gr. Heiti sveitarfélags.
Sveitarstjórn ákveður heiti sveitarfélags að fenginni umsögn örnefnanefndar. Skal það samrýmast íslenskri málfræði og málvenju. Ef könnun er gerð meðal íbúa á viðhorfi til breytingar á nafni sveitarfélags eða á nafni nýs sveitarfélags skal leita umsagnar örnefnanefndar um þau nöfn sem um ræðir.
Ekki má breyta nafni sveitarfélags eða gefa nýju sveitarfélagi nafn nema með staðfestingu ráðuneytisins. Þegar nýtt heiti sveitarfélags hefur verið ákveðið skal samþykkt um stjórn sveitarfélagsins, sbr. 9. gr., breytt til samræmis og tekur nýtt heiti gildi við gildistöku hennar.

Vefsíða Örnefnanefndar