Sérstakir íþrótta- og tómstundastyrkir vegna áhrifa COVID-19

Opnað hefur verið fyrir umsóknir á sérstökum íþrótta- og tómstundastyrkjum fyrir börn sem búa á tekjulægri heimilum þar sem markmiðið er að jafna tækifæri þeirra til þátttöku í skipulögðu íþrótta- og tómstundastarfi.

Styrkirnir koma til viðbótar hefðbundnum íþrótta- og tómstundastyrkjum sveitarfélaga. Alls verður um 900 milljónum króna varið í verkefnið árin 2020 og 2021 og er það hluti af aðgerðapakka sem kynntur var í vor og ætlað er að veita mótvægi vegna þeirra áhrifa sem COVID-19 faraldurinn hefur haft á afkomu efnaminni heimila í landinu. Í framhaldinu verður ráðist í vitundavakningu í samstarfi við mennta- og menningarmálaráðuneytið, sveitarfélög, Íþróttasamband Íslands og Ungmennafélag Íslands.

Hægt er að sækja um styrk fyrir börn sem fædd eru á árunum 2005-2014 og búa á heimili þar sem heildartekjur heimilisins voru að meðaltali lægri en 740.000 kr. á mánuði á tímabilinu mars – júlí 2020. Styrkurinn er 45.000 kr. á hvert barn og eiga um 13.000 börn rétt á styrknum. Sveitarfélögin annast afgreiðslu styrkumsókna eftir að búið er að kanna rétt til styrksins inni á Ísland.is.

Styrkina er hægt er að nota til niðurgreiðslu á þátttökugjöldum vegna íþróttaiðkunar, tónlistarnáms eða annarra tómstunda. Sveitarfélög setja reglur um úthlutun styrkjanna en fyrirkomulagið getur verið breytilegt á milli sveitarfélaga til dæmis varðandi það hvaða íþrótta- og tómstundastarf er styrkhæft, hvaða gögnum beri að skila með umsókn og afgreiðslutími umsókna.

Hér má nálgast kynningarmyndbönd á ellefu tungumálum sem ætlað er að vekja athygli á styrknum.

Myndbandið á íslenskuThe video in EnglishVîdyo bi Kurdî
Vaizdo įrašas yra lietuvių kalbaFilm jest w języku polskimVideoclipul este în limba română
El video esta en españolวิดีโอเป็นภาษาไทยVideo bằng tiếng việt
این ویدئو یک مسخره استالفيديو باللغة العربية