Á fundi bæjarstjórnar Akureyrar 17. september sl. voru kynntar og samþykktar samhljóða tillögur starfshóps sem hafði það verkefni að útbúa viðbragðsáætlun vegna ofbeldis, áreitis og/eða kynferðislegrar áreitni sem kjörnir fulltrúar kunna að verða fyrir í störfum sínum fyrir bæinn.
Á fundi bæjarstjórnar Akureyrar 17. september sl. voru kynntar og samþykktar samhljóða tillögur starfshóps sem hafði það verkefni að útbúa viðbragðsáætlun vegna ofbeldis, áreitis og/eða kynferðislegrar áreitni sem kjörnir fulltrúar kunna að verða fyrir í störfum sínum fyrir bæinn. Eins átti þessi starfshópur að yfirfara siðareglur og nýliðafræðslu kjörinna fulltrúa.
Starfshópurinn var skipaður á fundi bæjarstjórnar 12. desember 2017 í kjölfar #metoo umræðu í samfélaginu. Í ágúst 2018 fól bæjarstjórn starfshópnum að endurskoða siðareglur fyrir kjörna fulltrúa í heild sinni og þá sérstaklega þann hluta er snýr að hagsmunaárekstrum. Eins var eftir umræður í vinnuhópum ákveðið að búa til verkferla/viðbragðsáætlanir er snúa að fleiri þáttum í störfum kjörinna fulltrúa heldur en þá er snúa að #metoo.
Á bæjarstjórnarfundinum í gær lagði starfshópurinn fram minnisblað um vinnu sína og að auki:
- Endurskoðaðar siðareglur fyrir kjörna fulltrúa
- Samskiptasáttmála kjörinna fulltrúa
- Leiðbeiningar um skráningu kjörinna fulltrúa á fjárhagslegum hagsmunum og trúnaðarstörfum hjá Akureyrarbæ
Sem áður segir voru allar tillögur hópsins samþykktar af bæjarstjórn með 11 samhljóða atkvæðum.