Samningarfundi við BSRB lokið án niðurstöðu

Samningarfundi BSRB og Sambands íslenskra sveitarfélaga lauk í dag án niðurstöðu. Samninganefnd Sambandsins hefur ítrekað lagt fram ný tilboð og teygt sig mjög langt í því að mæta kröfum BSRB.

Sá samningur sem Sambandið hefur boðið BSRB inniheldur meðal annars 50.000 kr. til 60.000 kr. varanlega hækkun lægstu launa á mánuði frá 1. apríl 2023, og nær sú hækkun til um helmings félagsmanna.

110.000 kr. ávinningur á samningstíma

Eingreiðsluleið BSRB myndi skila hópi lægst launuðu félagsmanna BSRB hækkun launa á bilinu 37.000 kr. til 40.000 kr. á samningstímanum, auk eingreiðslu sem nemur 128.000 kr. Samkvæmt tilboði Sambandsins myndu lægstu laun hækka um 50.000 kr. til 60.000 kr. á mánuði frá 1. apríl 2023. Ávinningur lægst launuðu hópa starfsmanna sveitarfélaga á gildistíma samningsins yrðu 110.000 kr. umfram það sem sömu hópar hefðu fengið með eingreiðsluleið BSRB.

BSRB hafnaði hækkun til félagsmanna frá 1. janúar 2023

Sambandið ítrekar þá afstöðu sína að krafa BSRB um eingreiðslu sé tilhæfulaus. Samningurinn sem félagið skrifaði undir í mars 2020 lá á borði BSRB í sex mánuði. Félagið var ítrekað hvatt til að skrifa undir samskonar samning og Starfsgreinasambandið gerði en hafnaði því. Sambandið hvetur félagið til að fara með málið fyrir dóm telji það á sér brotið.