Rekstrarkostnaður á nemanda í grunnskólum 2020

Út er komið yfirlitsskjal um rekstrarkostnað á hvern grunnskólanemanda eftir stærð skóla árið 2020. Um er að ræða beinan rekstrarkostnað á almenna grunnskóla sveitarfélaga. Sérskólar eru því ekki meðtaldir.

Miðlægur kostnaður t.d. vegna skólaskrifstofa er ekki meðtalinn. Að gefnu tilefni er bent á að margvíslegar ástæður geta orsakað mun á lykiltölum eftir skólum og/eða sveitarfélögum. Hafa ber í huga að landfræðilegar aðstæður, eða breytur eins og samsetning og aldur starfsfólks í skóla getur haft áhrif á niðurstöður og því gagnlegt fyrir sveitarfélög að kanna nánar í hverju munurinn felst.
Reiknaður er rekstrarkostnaður með og án innri leigu og skólaaksturs. Innri leiga er þó verulega stærri hluti af rekstrarkostnaði en skólaakstur. Árið 2020 var rekstrarkostnaður á hvern nemanda að meðaltali rétt um 2,1 m.kr þegar innri leiga (og skólaakstur) er tekið með. Án innru leigu er meðalkostnaður á hvern nemanda 1,7 m.kr. Mikill munur er á rekstrarkostnaði á hvern nemanda eftir stærð skóla.

Yfirlitsskjal yfir rekstrarkostnað á nemanda í grunnskólum sveitarfélaga 2020