RECET verkefnið hlaut háan styrk frá Evrópusambandinu

Vestfjarðastofa og Samtök sveitarfélaga og atvinnuþróunar á Norðurlandi eystra eru meðal þeirra sem taka þátt í RECET verkefninu sem nýlega hlaut 1,5 milljón evra styrk frá Evrópusambandinu.

RECET stendur fyrir Rural Europe for the Clean Energy Transition. Verkefnið er leitt af íslenskum aðilum en þátttakendur í verkefninu eru frá fimm Evrópulöndum og að því koma fjölmörg sveitarfélög. RECET er ætlað að efla getu sveitarfélaga á fimm svæðum í Evrópu til að takast á við orkuskipti og smíða orkuskiptaáætlanir fyrir svæðin í samvinnu og samstarfi við hagsmunaaðila og atvinnulíf.

Sveitarfélög í dreifðum byggðum munu gegna lykilhlutverki í orkuskiptum og innleiðingu aðgerða sem miða að markmiði Evrópusambandsins um kolefnishlutleysi 2050 og lögfest markmið Íslands um kolefnishlutleysi 2040. Umtalsverð uppbygging innviða til orkuöflunar, flutnings og dreifingar þarf að eiga sér stað sem krefst aðkomu sveitarfélaga meðal annars í gegnum skipulagsgerð og leyfisveitingar.

Í RECET verkefninu verður stuðst við reynslu og aðferðir Energiakademiet frá eyjunni Samsø í Danmörku við mótun og þróun aðgerða til orkuskipta á hverju landsvæði fyrir sig. Energiakademiet hefur áratuga reynslu af því að þróa og innleiða svæðisbundnar orkuskiptaáætlanir.

Íslensk Nýorka og Eimur leiða verkefnið hér á landi en Vestfjarðastofa og Samtök sveitarfélaga og atvinnuþróunar á Norðurlandi eystra (SSNE) eru einnig þátttakendur. Utan Íslands koma einnig að RECET: Sveitarfélagið Postojna í Slóveníu, Blekinge sýsla í Suðaustur-Svíþjóð og sveitarfélög á eyjunni Menorca á Spáni. Að auki hafa fleiri lýst yfir stuðningi við verkefnið, og þar á meðal er Samband íslenskra sveitarfélaga.

Gyða Einarsdóttir verkefnastjóri grænna og snjallra verkefna hjá sambandinu telur að þátttaka sveitarfélaga er lykilatriði í því að Ísland nái loftslagsmarkmiðum sínum.

„RECET verkefnið er gríðarlega spennandi verkefni, sem mun styðja við sveitarfélög á Íslandi og hjálpa þeim til þess að setja markmið og gera raunhæfar áætlanir um það hvernig við getum orðið jarðefnaeldsneytislaus 2040.“

Sú þekking sem mun skapast í RECET verkefninu og niðurstöður þessu verða aðgengileg öllum sveitarfélögum jafnt á Íslandi sem og annars staðar í Evrópu. Vilji sveitarfélög eða landshlutasamtök þeirra fylgjast með verkefninu og taka þátt, eru þau eindregið hvött til að hafa samband við Önnu Margréti Kornelíusdóttur verkefnastjóra hjá Íslenskri Nýorku, amk@newenergy.is, eða Ottó Elíasson, rannsókna- og þróunarstjóra hjá Eimi, ottoel@eimur.is.  

Verkefnið hefst 1. október 2023 og stendur yfir í þrjú ár.