Fréttir og tilkynningar
Fylgstu með málstofum fjármálaráðstefnunnar
Fjórar málstofur standa nú yfir á fjármálaráðstefnu sveitarfélaga. Nálgast má upptökur af erindum og glærum fyrirlesara hér á vef sambandsins.
Setjum manninn, íbúa og byggðir þessa lands í fyrsta sæti
Aldís Hafsteinsdóttir, nýkjörinn formaður Sambands íslenskra sveitarfélaga, segir eitt brýnasta verkefni næstu missera að skilgreina verkaskiptingu ríkis og sveitarfélaga. Skipting verka á milli þessara tveggja stjórnsýslustiga þurfi að vera án grárra svæða, og sannmælast verði um sanngjarna fjármögnun þjónustunnar. Setja á manninn, íbúa og byggðir þessa lands í fyrsta sæti.
Þegar vel árar á að lækka skuldir
Sigurður Ingi Jóhannsson, samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra, ítrekaði í ávarpi sínu á fjármálaráðstefnu sveitarfélaga í dag, áhuga sinn á því að efla sveitarstjórnarstigið með fækkun og stækkun sveitarfélaga. Ráðherra hvatti enn fremur til þess að sveitarfélögin sættu lagi og lækkuðu enn frekar skuldir sínar, nú þegar vel árar og lagði til að núverandi skuldahlutfall í lögum lækki úr 150% í 120%.
Horfur góðar en hægir á vexti
Þrátt fyrir hagfelldar horfur ríkir talsverð óvissa í efnahagsmálum, að sögn Hennýjar Hinz, hagfræðings ASÍ, sem fjallaði um horfur í þjóðarbúskapnum á fjármálaráðstefnunni í dag. Samkeppnisstaða í ferðaþjónustu hefur farið versnandi með hækkandi raungengi og olíuverðshækkanir hafa aukið óvissu í flugrekstri.
Núverandi samspil fjármálareglna og fjárfestinga er óheppilegt
Fjáramálareglur sveitarstjórnarlaga torvelda fjárfestingar þegar illa árar en hvetja til aukinna fjárfestinga í góðæri. Skoða þarf betur þetta samspil, sem er að mati Sigurðar Á. Snævarr, sviðsstjóra hjá Sambandi íslenskra sveitarfélaga, óheppilegt til langs tíma fyrir hagþróun.
Viðurkenna verður framlegðarþörf sveitarfélaga
Forsenda þess að sveitarfélög geti sinnt nauðsynlegri uppbyggingu og þróun vegna þeirra verkefna sem þau taka að sér, er að framlegðarþörf þeirra sé viðurkennd af hálfu ríkisins. Karl Björnsson, framkvæmdastjóri Sambands íslenskra sveitarfélaga, fjallaði um verkaskiptingu ríkis og sveitarfélaga í erindi sínu á fjármálaráðstefnu sveitarfélaga í dag og þróun helstu stærða í þeim efnum.
Látum heldur verkin tala
Engin hagræðing er fólgin í því að ýta kostnaði af einu stjórnsýslustigi yfir á það næsta, sagði Sigrún Þórarinsdóttir, félagsþjónustufulltrúi Sambands íslenskra sveitarfélaga á fjármálaráðstefnu í dag. Sigrún fjallaði þar um svokölluð grá svæði í opinberri þjónustu.
„Gljúfrið“ í þjónustu ríkis og sveitarfélaga
Nær væri að tala um gljúfur í opinberri þjónustu en grá svæði, að mati Önnu Gunnlaugar Ólafsdóttur, framkvæmdastjóra Geðhjálpar. Þetta gljúfur, sem hefur myndast á þjónustumótum ríkis og sveitarfélaga, fari stækkandi verði ekkert að gert.
Upptökur af fjármálaráðstefnu sveitarfélaga
Nálgast má upptökur af öllum erindum sem flutt voru á fjármálaráðstefnu sveitarfélaga í dag hér á vef sambandsins ásamt glærum margra fyrirlesara. Upptökur af þeim fjórum málstofum sem fara fram fyrir hádegi á morgun, á síðari degi ráðstefnunnar, verða einnig aðgengilegar hér á vef sambandins.
Beint streymi af fjármálaráðstefnu 2018
Streymt verður beint af fjármálaráðstefnunni fyrri dag ráðstefnunnar, fimmtudaginn 11. október. Áhugasamir geta því fylgst með þeim hluta dagskrárinnar í beinni útsendingu og nálgast auk þess upptökur af einstökum erindum og fréttir af ráðstefnunni hér á vef sambandsins.
Lyfjanotkun ungmenna – beint streymi
Lyfjanotkun ungmenna, íslenskur veruleiki er umfjöllunarefni morgunarverðarfundar Náum áttum sem stendur nú yfir á Grand hóteli. Fylgjast má með fundinum í beinu streymi á samband.is/beint. Einnig verða upptökur af erindum fundarins gerðar aðgengilegar hér á vef sambandsins.
Fjármálaráðstefna sveitarfélaga 2018
Aldís Hafsteinsdóttir, nýkjörinn formaður Sambands íslenskra sveitarfélaga, setur fjármálaráðstefnu 2018, fimmtudaginn næstkomandi þann 11. október. Meginþema ráðstefnunnar er að þessu sinni verkaskipting ríkis og sveitarfélaga ásamt þeim gráu svæðum sem óskýr verkaskipting leiðir til í opinberri þjónustu.
Uppselt á fjármálaráðstefnu 2018
Uppselt er á fjármálaráðstefnu sveitarfélaga sem haldinn verður 11.-12. október nk. á Hilton Reykjavík Nordica.
Umhverfisstofnun hafnar niðurstöðu úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála
Umhverfisstofnun hafnar niðurstöðu úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála um ógildingu starfsleyfa fiskeldisfyrirtækja í Patreksfirði og Tálknafirði. Leyfisútgáfa hafi verið í samræmi við lög og reglur og telur stofnunin að mörgum spurningum sé ósvarað varðandi úrskurði nefndarinnar.
Tvöföld lögheimilisskráning barna
Samband íslenskra sveitarfélaga hefur sent frá umsögn um frumvarp sem heimilar lögheimilisskráningu barna hjá báðum foreldrum. Er í umsögninni áréttuð sú afstaða að sambandið hefur í sambærilegum málum lagst gegn slíkum skráningum og fremur talað fyrir skiptri búsetu barna til að jafna stöðu foreldra.
Íslenska er stórmál
Íslenskan stendur á tímamótum og mikilvægt er að tryggja að íslensk tunga standi jafnfætis öðrum málum og sé notuð á öllum sviðum þjóðlífsins. Svo segir meðal annars í viljayfirlýsingu, sem undirrituð var á Skólamálaþingi Kennarasambands Íslands (KÍ) fyrr í dag.
Rannsóknarskyldu gagnvart umhverfismati hafi ekki verið sinnt
Úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála hefur fellt úr gildi rekstrarleyfi sem Matvælastofnun veitti Fjarðarlaxi og Arctic Sea Farm undir lok desembermánaðar á síðasta ári vegna 17.500 tonna ársframleiðslu á laxi. Rök úrskurðarnefndar eru m.a. þau, að Matvælastofnun hafi ekki sinnt lögboðinni rannsóknarskyldu sinni á því hvort álit Skipulagsstofnunar vegna umhverfismats framkvæmda myndaði nægilega traustan lagagrundvöll fyrir útgáfu rekstrarleyfisins. Úrskurðurinn virðist hafa leitt af sér verulega óvissu um stöðu fiskeldis.
Opið fyrir umsóknir í Framkvæmdasjóð ferðamannastaða
Opnað var fyrir umsóknir í Framkvæmdsjóð ferðamannastaða í gær. Umsóknarfrestur er til 28. október nk. en sjóðurinn styrkir framkvæmdir sveitarfélaga og einkaaðila á ferðamannastöðum að vissum skilyrðum uppfylltum.