Fréttir og tilkynningar

Nýjar aðferðir við orkuöflun

Eftirspurn eftir raforku er nú þegar umfram framboð hér á landi, segir í nýrri skýrslu sem ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra hefur látið gera um nýjar aðferðir við orkuöflun. Vindorka, lítil vatnsorkuver og varmaorka eru þeir orkukostir sem taldir eru líklegastir til að leysa úr stóraukinni orkuþörf á næstu áratugum. Sveitarfélög gegna lykilhlutverki fyrir orkubúskap þjóðarinnar.

Lesa meira

Undanþágur frá starfsleyfi veittar með skilyrðum

Umhverfis- og auðlindaráðherra hefur veitt Arctic Sea Farm hf. og Fjarðalaxi hf. undanþágur vegna sjókvíaeldis á laxi í Patreksfirði og Tálknafirði með skilyrðum. Tímabundið starfsleyfi heimilar Arctic Sea Farm framleiðslu á 600 tonnum á ári og Fjarðalaxi 3.400 tonnum á ári. Starfsleyfin falla úr gildi í síðasta lagi þann 5. september 2019.

Lesa meira

Skipun öldungaráðs

Í lögum um félagsþjónustu sveitarfélaga nr. 40/1991 m.s.br. er kveðið á um skipan öldungaráðs sveitarfélaga. Þessu ráði er ætlað að vera formlegur samráðsvettvangur um þjónustu við aldraða og þróun öldrunarmála innan sveitarfélagsins.

Lesa meira

Fyrsta skóflustungan tekin hjá Byggðastofnun

Sigurður Ingi Jóhannsson, samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra, tók nýlega fyrstu skóflustunguna að nýju skrifstofuhúsnæði fyrir Byggðastofnun á Sauðárkróki. Nýju húsnæði er ekki aðeins ætlað að leysa úr húsnæðisvanda stofnunarinnar heldur fylgir hönnun þess einnig eftir stefnumörkun úr byggðaáætlun 2018-2024.

Lesa meira

European Youth Capital 2022

European Youth Capital eða höfuðborg unga fólksins í Evrópu er titill sem Ungmennasamtök Evrópu (e. European Youth Forum, EYF) veita evrópskri borg eða bæ til eins árs í senn. Markmiðið er að stuðla að aukinni valdeflingu ungs fólks og efla þátttöku þess í samfélaginu. 

Lesa meira

Úthlutun á verkefnastyrkjum í byggðaáætlun vegna sóknaráætlana

Samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra hefur veitt landshlutasamtökum sveitarfélaga níu verkefnastyrki á grundvelli stefnumótandi byggðaáætlunar fyrir árin 2018-2024. Þetta er í fyrsta sinn sem framlög úr byggðaáætlun eru sett í samkeppnispott og þeim úthlutað að fengnum umsóknum. Stendur til að fjölga slíkum samkeppnispottum jafnt og þétt á næstunni, að sögn Sigurðar Ing Jóhannssonar, samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra.

Lesa meira

Áfangastaðaáætlanir allra landshluta kynntar

Áfangastaðaáætlanir landshlutanna voru kynntar á fjölsóttum kynningarfundi í gær, en verkefnið er það umfangsmesta sem unnið hefur verið á grundvelli Vegvísis í ferðaþjónustu. Aldís Hafsteinsdóttir, formaður Sambands íslenskra sveitarfélaga, hvetur sveitarfélög eindregið til þess að kynna sér áætlanirnar. Mikilvægt sé að þær nýtist sveitarfélögum og landshlutum til uppbyggingar. 

Lesa meira

Heimsmarkmiðin og sveitarfélögin

Nordregio, Norræna byggðastofnunin, hefur gefið út skýrslu um heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna og sveitarfélög á Norðurlöndum. Skýrslan nefnist Global goals for local priorities: The 2030 Agenda at local level og fjallar um brautryðjendur í innleiðingu eða first movers. Af þeim 27 sveitarfélögum sem skýrslan nær til eru tvö íslensk eða Kópavogur og Mosfellsbær.

Lesa meira

Vímuefnavandi ungmenna

Í morgun efndi Náum áttum hópurinn til morgunverðarfundar undir yfirskriftinni Vímuefnavandi ungmenna – hvar getum við gert betur? Aukin neysla ungs fólks á ávana- og fíkniefnum og normalísering slíkrar neyslu var á meðal þess sem fjallað var um. 

Lesa meira

Frestur vegna jafnlaunavottunar framlengdur um ár

Fresturinn hefur verið framlengdur til 31. desember 2019. Tekur til allra fyrirtækja og stofnana, óháð stærð þeirra, að þeim aðilum undanskildum sem eru að hálfu eða að meirihluta í eigu ríkisins og með 25 starfsmenn eða fleiri að jafnaði á ársgrundvelli.

Lesa meira

Áfangastaðaáætlanir landsins kynntar

Ferðamálastofa gengst fyrir kynningu á  öllum sjö áfangastaðaáætlunum landsins á Hótel Sögu þann 15. nóvember nk. kl. 13:00-16:00.

Lesa meira

Samspil 2018

Samspil 2018 er fræðsluátak um starfsþróun í þágu menntunar fyrir alla. Átakið er ætlað öllum sem koma að skóla- og fræðslustarfi og er þátttakendum að kostnaðarlausu. 

Lesa meira

Umsögn sambandsins um fjárlagafrumvarpið

Samband íslenskra sveitarfélaga telur að margt megi betur fara í frumvarpi til fjárlaga 2019, eins og ítarleg umsögn þess um málið er til marks um. Auk þess sem frumvarpið þykir í heild sinni ógagnsætt og torskilið, eru athugasemdir gerðar við  fjölmörg málefnasvið, þ.á.m skatta og tryggingargjald, persónuvernd, almenningssamgöngur, húsnæðismál, þjónustu við fatlað fólk, ferðaþjónustu og fræðslumál, svo að eitthvað sé nefnt. Helstu athugasemdir hafa nú verið teknar saman í aðgengulegu yfirliti.

Lesa meira

Umræðu- og samráðsfundir vegna kjaraviðræðna 2019

Kjarasvið Sambands íslenskra sveitarfélaga hefur að undanförnu verið á ferð og flugi um landið vegna komandi kjaraviðræðna. Starfsmenn sviðsins hafa fundað með sveitarfélögum allra landshluta að höfuðborgarsvæðinu undanskildu, en fundað verður með sveitarfélögum innan SSH í byrjun næstu viku.

Lesa meira

Tölfræði heimsmarkmiðanna

Mikilvægur liður í heimsmarkmiðum Sameinuðu þjóðanna er mótun staðlaðra mælikvarða eða vísa. Alls hafa 232 slíkir mælikvarðar verið skilgreindir og eru 164 þeirra komnir með skilgreinda aðferðarfræði. Af þeim hafa 67 verið gerðir aðgengilegir fyrir Ísland í samstarfi verkefnastjórnar heimsmarkmiðanna við Hagstofu Íslands undir yfirskriftinni Tölfræði heimsmarkmiðanna.

Lesa meira

Ísland ljóstengt – opið fyrir umsóknir

Fjarskiptasjóður hefur nú opnað fyrir umsóknir um styrki í átaksverkefninu Ísland ljóstengt fyrir árið 2019. Átaksverkefnið er eitt af lykilverkefnum í byggðaáætlun stjórnvalda en markmið þess er að byggja upp ljósleiðarakerfi utan markaðssvæða í dreifbýli um allt land. Sveitarfélögum stendur nú einnig til boða að sækja um samvinnustyrk sem valkost við umsókn á grundvelli samkeppnisfyrirkomulags.

Lesa meira

Sveitarfélögin og drög að aðgerðaáætlun í plastmálefnum

Kallað er eftir beinum aðgerðum á vegum sveitarfélaga í fimm af þeim 18 tillögum sem lagðar eru til í drögum samráðsvettvangs umhverfis- og auðlindaráðherra um aðgerðaáætlun í plastmálefnum. Aðgerðirnar varða allt frá grænum innkaupum að skólphreinsun og flokkun úrgangs. 

Lesa meira

Evrópumál og sveitarfélögin

Upplýsingarit Sambands íslenskra sveitarfélaga um Evrópumál er komið út. Samningurinn um Evrópska efnahagssvæðið hefur margs konar áhrif á starfsemi sveitarfélaga og fjallar ritið á aðgengilegan hátt um það helsta sem sveitarfélög þurfa að vera upplýst um í Evrópumálum.

Lesa meira