Verðlaunin eru veitt árlega á Degi leikskólans, 6. febrúar, fyrir framúrskarandi skólastarf eða umbætur og þróun í menntamálum eða í kennsluháttum á leikskólastiginu.
![](https://www.samband.is/wp-content/uploads/2024/01/ordsporid.png)
Hægt er að senda inn tilnefningu til Orðsporsins 2024 með því að senda póst á netfangið dagurleikskolans@ki.is. Frestur er til 22. janúar.
Að Orðsporinu standa Félag leikskólakennara, Félag stjórnenda leikskóla, mennta- og barnamálaráðuneytið, Samband íslenskra sveitarfélaga og Heimili og skóli.