Orkusjóður auglýsir sérstaka styrki 2019

Ráðgjafarnefnd Orkusjóðs hefur ákveðið að sérstakar styrkveitingar Orkusjóðs á árinu 2019 verði til verkefna sem leiði til lægri kostnaðar við óniðurgreidda rafkyndingu húsnæðis og mannvirkja í eigu sveitarfélaga.

Ráðgjafarnefnd Orkusjóðs hefur ákveðið að styrkveitingar Orkusjóðs á árinu 2019 verði til verkefna samkvæmt b) lið 7. gr. reglugerðar nr. 185/2016 um Orkusjóð en þar segir: „Styrkir til verkefna sem leiði til lægri kostnaðar við óniðurgreidda rafkyndingu húsnæðis og mannvirkja í eigu sveitarfélaga.“

Til greina kemur meðal annars: Uppsetning varmadæla, uppsetning eða endurbætur á hitastýringarkerfum og önnur verkefni sem leiða til minni raforkunotkunar við hitun.

Um er að ræða fjárfestingarstyrki, sem hæst geta numið 50% af áætluðum kostnaði við einstök verkefni, þó að hámarki 5 m.kr.

Umsóknarfrestur er til 20. október 2019. Sjá nánari upplýsingar í auglýsingu.

Umsóknir sendist í gegnum þjónustugátt Orkustofnunar.