Mennta- og barnamálaráðuneytið leggur fé til stuðnings sveitarfélögum þar sem börn á flótta eru búsett. Styrkurinn nær til allra barna á skólaskyldualdri sem fengið hafa alþjóðlega vernd eða dvalarleyfi af mannúðarástæðum frá 1. janúar 2022.
![](https://www.samband.is/wp-content/uploads/2024/03/bornaflotta.jpg)
Markmiðið með fjárstuðningnum er að styðja við móttöku barna sem hafa neyðst til þess að flýja heimaland sitt vegna átaka.
Veittur er fjárstuðningur til verkefna sem snúa að
- stuðningi innan skóla og frístundastarfs,
- stuðningi við barnaverndarnefndir og önnur úrræði fyrir fjölskyldur á flótta.
Fjárstuðningurinn miðar við þann fjölda barna á skólaskyldualdri sem hlotið hafa alþjóðlega vernd eða fengið dvalarleyfi af mannúðarástæðum í hverju sveitarfélagi. Hægt er að sækja um 300.000 kr. styrk vegna hvers barns.
- Umsókn á eyðublaðavef Stjórnarráðsins undir Eyðublöð - Mennta- og barnamálaráðuneytið
- Form um fjölda barna eftir fæðingarári og ríkisfangi sem fylgja þarf umsókn
Umsóknarfrestur er til og með 3. apríl nk. Tekið skal fram að opnað verður fyrir umsóknir á ný í lok ágúst 2024 og þá geta sveitarfélög sótt um fyrir börn sem hafa flust til sveitarfélagsins eftir að fyrri umsókn var send til mennta- og barnamálaráðuneytisins.