Opið fyrir umsóknir úr Framkvæmdasjóði ferðamannastaða

Framkvæmdasjóður ferðamannastaða fjármagnar framkvæmdir á ferðamannastöðum og ferðamannaleiðum í eigu eða umsjón sveitarfélaga og einkaaðila.

Sjóðnum er heimilt að fjármagna framkvæmdir er snúa að:

  • Öryggi ferðamanna.
  • Náttúruvernd og uppbyggingu.
  • Viðhaldi og verndun mannvirkja og náttúru.
  • Fjármögnun undirbúnings- og hönnunarvinnu sem er nauðsynleg vegna áðurgreindra framkvæmda.

Fyrirhuguðu verkefni skal í umsókn lýst svo skilmerkilega að mögulegt sé að meta styrkhæfi þess.

Styrkur greiðist út í samræmi við lög og reglugerð sjóðsins og eru umsækjendur hvattir til að kynna sér reglurnar. Aðeins eru veittir styrkir til verkefna en ekki til staða eða aðila.

Mótframlag

Mótframlag styrkþega er að jafnaði 20% af styrkfjárhæð. Mótframlag getur verið í formi aðkeyptrar þjónustu, efnis og/eða vinnuframlags.

Varanlegar lausnir

Framkvæmdasjóður ferðamannastaða leggur áherslu á að veita styrki til varanlegra verkefna (langtímalausna) sem byggja á vandaðri hönnun. Að öllu jöfnu er ekki gert ráð fyrir að sjóðurinn veiti fjármagni til uppsetningar skyndilausna nema ef um undantekningartilvik er að ræða þar sem mjög brýna nauðsyn ber til og þá sem undanfara varanlegrar mannvirkjagerðar eða í kjölfar náttúruhamfara.

Umsóknarfrestur er frá 27. september til kl. 13 þriðjudaginn 26. október 2021.