Nýtt og samræmt merkingakerfi fyrir úrgang

Fenúr – fagráð um endurnýtingu og úrgang hefur unnið að þýðingu og staðfæringu á nýju og samræmdu norrænu merkingakerfi fyrir úrgang. Samræmt, einfalt og gott merkingakerfi er mikilvægt til að stuðla að betri flokkun og styður við bætta úrgangsstjórnun á Íslandi. Mikilvægur hlekkur í hringrásarhagkerfinu.

Guðmundur Ingi Guðbrandsson, umhverfis- og auðlindaráðherra, tók við fyrstu merkjunum ásamt handbók með leiðbeiningum um notkun. Merkingarnar byggja á dönskum úrgangsmerkingum og norrænu samstarfi um samræmdar merkingar í úrgangsmálum. Umhverfis- og auðlindaráðuneytið styrkti verkefnið.

Nánari upplýsingar og viðtal veitir Eygerður, Margrétardóttir, formaður Fenúr, í síma 693-2302 eða í gegnum netfangið fenur@fenur.is

Eygerður Margrétardóttir, formaður Fenúr, afhenti Guðmundi Inga Guðbrandssyni, umhverfis- og auðlindaráðherra, fyrstu eintök af merkingnum.

Nánar á www.fenur.is