Nýtt loftslagsráð tekið til starfa

Nýtt loftslagsráð kom saman í fyrsta sinn miðvikudaginn 18. september sl.

Með breytingum sem Alþingi samþykkti á lögum um loftslagsmál í vor er loftslagsráð lögfest og tiltekið að í ráðinu skuli eiga sæti fulltrúar frá tilteknum aðilum. Í nýja ráðinu hefur fulltrúum Sambands íslenskra sveitarfélaga verið fjölgað í tvo, en þau eru Hrönn Hrafnsdóttir og Ragnar Frank Kristjánsson. Í lögunum er einnig gert ráð fyrir því að umhverfis- og auðlindaráðherra hafi heimild til að skipa fulltrúa annarra, sem þörf er talin á að eigi sæti í ráðinu á hverjum tíma. Ráðherra nýtti sér þá heimild að þessu sinni og bætti inn í ráðið fulltrúa ungs fólks sem undanfarið hefur m.a. beitt sér í loftslagsmálum.

Hlutverk ráðsins

Ráðinu, sem nú er skipaði í annað sinn, er ætlað að vera stjórnvöldum til ráðgjafar um stefnumarkandi ákvarðanir sem tengjast loftslagsmálum á Íslandi, veita ráðgjöf um samdrátt í losun gróðurhúsalofttegunda, aðgerðir til að auka kolefnisbindingu og aðlögun að loftslagsbreytingum. Þá hefur það einnig það hlutverk að rýna áætlanir stjórnvalda sem snerta loftslagsmál; hafa yfirsýn yfir miðlun fræðslu og upplýsinga um loftslagsmál til almennings, fyrirtækja, stofnana og sveitarfélaga; og rýna tillögur sem berast frá fagstofnunum um vöktun og rannsóknir sem tengjast loftslagsbreytingum.

Nýtt loftslagsráð kom saman í fyrsta sinn miðvikudaginn 18. september sl. og var þá meðfylgjandi mynd, sem er af vef Stjórnarráðsins, tekin.

Halldór Þorgeirsson, fyrrum yfirmaður hjá skrifstofu Loftslagssamnings Sameinuðu þjóðanna, er formaður ráðsins og Brynhildur Davíðsdóttir, prófessor í umhverfis og auðlindafræði við Háskóla Íslands er varaformaður. Auk þeirra eiga eftirtaldir sæti í ráðinu:

  • Sigurður Thorlacius, fulltrúi ungs fólks, skipaður af umhverfis- og auðlindaráðherra,
  • Maríanna Traustadóttir, sérfræðingur, tilnefnd af Alþýðusambandi Íslands,
  • Sigurður Eyþórsson, framkvæmdastjóri, tilnefndur af Bændasamtökum Íslands,
  • Jóhanna Harpa Árnadóttir, stjórnarmaður, tilnefnd af Festu - miðstöð um samfélagsábyrgð,
  • Guðfinna Th. Aðalgeirsdóttir, prófessor, tilnefnd af samstarfsnefnd háskólastigsins,
  • Steingrímur Jónsson, prófessor, tilnefndur af samstarfsnefnd háskólastigsins,
  • Sævar Helgi Bragason, jarðfræðingur, tilnefndur af Neytendasamtökunum,
  • Hrefna Karlsdóttir, sérfræðingur, tilnefnd af Samtökum atvinnulífsins,
  • Hrönn Hrafnsdóttir, verkefnisstjóri, tilnefnd af Samtökum íslenskra sveitarfélaga,
  • Ragnar Frank Kristjánsson, sviðsstjóri, tilnefndur af Samtökum íslenskra sveitarfélaga,
  • Árni Finnsson frá Náttúruverndarsamtökum Íslands, tilnefndur sameiginlega af umhverfisverndarsamtökum,
  • Ragnhildur Freysteinsdóttir frá Skógræktarfélagi Íslands, tilnefnd sameiginlega af umhverfisverndarsamtökum,
  • Gunnar Dofri Ólafsson, lögfræðingur, tilnefndur af Viðskiptaráði Íslands.

Loftslagsrad-kemur-saman