Nýr starfshópur um sveitarstjórnaráætlun hefur störf

Nýr starfshópur um stefnumótandi áætlun ríkisins um málefni sveitarfélaga hélt sinn fyrsta fund í innviðaráðuneytinu þann 15. nóvember sl.

Hópurinn á sínum fyrsta fundi ásamt innviðaráðherra. Mynd: innviðaráðuneytið.

Hópnum er ætlað að skila tillögu til innviðaráðherra um stefnu stjórnvalda gagnvart sveitarfélögum til fimmtán ára 2024 til 2038 og aðgerðaáætlun til fimm ára 2024 til 2028 í byrjun næsta árs. Stefnumótunin byggir á ákvæði sveitarstjórnarlaga um að ráðherra leggi fram endurskoðaða stefnu í málaflokki sveitarfélaga á þriggja ára fresti. Stefnan tekur við af fyrstu stefnu og aðgerðaáætlun stjórnvalda í málefnum sveitarfélaganna í landinu á næsta ári.

Í hópnum eiga sæti:

  • Stefán Vagn Stefánsson veitir starfshópnum formennsku fyrir hönd innviðaráðherra
  • Rósa Guðbjartsdóttir bæjarstjóri í Hafnarfirði, skipuð af ráðherra
  • Heiða Björg Hilmisdóttir, formaður sambandsins og borgarfulltrúi, f.h. sambandsins
  • Jón Björn Hákonarson, varaformaður sambandsins og bæjarstjóri í Fjarðabyggð, f.h. sambandsins
  • Aðalsteinn Þorsteinsson, skrifstofustjóri sveitarfélaga og byggðamála í ráðuneytinu - áheyrnarfulltrúi
  • Karl Björnsson, framkvæmdastjóri sambandsins - áheyrnarfulltrúi

Fyrsta stefna og aðgerðaáætlun stjórnvalda í málefnum sveitarfélaganna fól m.a. í sér aukinn stuðning Jöfnunarsjóðs við sameiningu sveitarfélaga, átak í stafrænni umbreytingu sveitarfélaga, umbætur á starfsaðstæðum kjörinna fulltrúa og vinnu við fjármálaviðmið og endurskoðun tekjustofna sveitarfélaga. Endurskoðun stefnumótunarinnar felur m.a. í sér víðtækt samráð við sveitarfélögin í landinu, íbúa og aðra hagsmunaaðila um stöðu sveitarfélaga, áskoranir og tækifæri til framtíðar.

Á fyrsta fundi starfshópsins lagði innviðaráðherra áherslu á mikilvægi stefnumótunarinnar, sagðist hlakka til að taka á móti tillögum hópsins og óskaði honum velfarnaðar í vinnunni framundan.

Stefnt er að því að starfshópurinn skili tillögum til ráðherra í mars á næsta ári.