Nýr kjarasamningur við Félag kennara og stjórnenda í tónlistarskólum

Samninganefndir Félags kennara og stjórnenda í tónlistarskólum og Sambands íslenskra sveitarfélaga undirrituðu í dag með rafrænum hætti nýjan kjarasamning milli aðila.

Gildistími samningsins er frá 1. janúar 2022 til og með 31. mars 2023. Núgildandi kjarasamningur aðila rann út þann 31. desember síðastliðinn.

Nýr kjarasamningur fer nú í kynningu meðal félagsmanna Félags kennara og stjórnenda í tónlistarskólum og hjá Sambandi íslenskra sveitarfélaga, en niðurstaða atkvæðagreiðslu um samninginn mun liggja fyrir þann 21. janúar 2022.