Ný tækifæri í Evrópusamstarfi verða kynnt í beinni útsendingu frá Borgarleikhúsinu 15. apríl kl. 14:00-16:00 þegar nýrri kynslóð samstarfsáætlana ESB verður hleypt af stokkunum.
Kynnið ykkur tækifæri og styrki á vegum Horizon Europe, Erasmus+, European Solidarity Corps og Creative Europe.
Á hátíðinni verður farið yfir helstu nýjungar og styrkjamöguleika Horizon Europe rannsókna- og nýsköpunaráætlunarinnar, Erasmus+ á sviði menntunar, æskulýðsmála og íþrótta, European Solidarity Corps fyrir sjálfboðaliða- og samfélagsstarf ungs fólks og Creative Europe á sviði skapandi greina.
Einnig verður litið um öxl og árangri síðustu ára fagnað í óformlegu spjalli við styrkþega sem segja sínar sögur. Loks verður sagt frá vinnustofum og nánari kynningum um hverja áætlun sem skipulagðar verða í framhaldinu.
Rannís hefur umsjón með samstarfsáætlunum ESB á sviði rannsókna og nýsköpunar, menntunar, menningar og æskulýðsmála á Íslandi.
Streymið verður auglýst á vef Rannís þegar nær dregur og sveitarfélög eru hvött til að taka þátt og kynna sér samstarfsáætlanir ESB og þau tækifæri sem í þeim felast.